Fusion Fitness Academy – Hóptímakennarnám á Íslandi
Sumarskólinn hefst laugardaginn 1. júní og er í 4 vikur
Haustönn hefst laugardaginn 8. september
BOÐIÐ ER UPP Á STAÐARNÁM EÐA FJARNÁM
HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á AÐ STARFA VIÐ HÓPTÍMAKENNSLU OG HÓPÞJÁLFUN?
Þá er Fusion Fitness Academy spennandi kostur fyrir þig.
Í Fusion Fitness Academy starfa háskólamenntaðir kennarar og hóptímakennarar með mikla reynslu. Námskeiðið er kennt á íslensku og ensku. Aðeins 15 nemendur eru teknir inn á hverri önn.
HVAÐ FELST Í NÁMINU?
10 vikna nám sem kennt er á laugardögum og sunnudögum auk verknáms.
Sumarskólinn er kenndur í styttri lotum alls 4 vikur.
Meðal annars er farið í styrktarþjálfun, líffæra- og lífeðlisfræði, þjálfunarfræði, kennslufræði, íþróttasálfræði, líkamsbeitingu, markaðsfræði og uppsetning hóptímakennslu.
Þeir sem eru í námi hjá FFA fara í verknám undir handleiðslu og eftirliti kennara skólans.Verknámið er mikilvægur þáttur í að undirbúa sig fyrir kennslu hóptíma. Einnig viljum við undirstrika það við nemendur að mikilvægt er að mæta sjálf/ur í tíma skoða hvernig og hvað aðrir kennarar eru að kenna og gera.
Gera þarf ráð fyrir tíma til að mæta í hóptíma utan skólatíma fyrir staðbundið nám.
Hér er því um að ræða frábært atvinnutækifæri fyrir þá sem vilja verða hóptímakennarar.
Vetrarönn hefst í janúar, vorönn í mars, sumarskólinn í júní og haustönn í september.
18 ára aldurstakmark er í námið og stendur það yfir í 10 vikur. Sumarskólinn er kenndur í styttri lotum.
Kennsla fer fram laugardaga og sunnudaga kl. 10:00 – 16:00 auk þess sem nemendur taka verknám sem felst í því að kenna hóptíma.
Sumarskólinn er kenndur um helgar og á virkum dögum í samstarfi við nemendur skólans.
Staðarnám kr. 290.000
Fjarnám kr. 270.000
Bóklegir kennsluáfangar:
Líffæra- og lífeðlisfræði
Markaðsfræði
Næringarfræði
Leiðtoga- og hópþjálfun
Sjálfstraust og sigurvissa fyrirlestur
Markmiðssetning; Unnið með sjálfstraust, sigurvissu og að setja sér raunsæ markmið og fylgja þeim eftir
Kennslupýramídinn
Skilgreining á mismunandi hóptímum og þjálfun
Kenndir eru eftirfarandi líkamræktaráfangar:
- Styrktarþjálfun
- Infrared og heitir hóptímar
- HIIT Þjálfun – High Intensity Interval Training
- Spinning kennslufræði
- Teygjur, öndun og slökun
- Bandvefslosun
- Vaxtarmótun
- Stöðvaþjálfun (Interval Training)
- Functional Training
- Farið er yfir marga nauðsynlega þætti sem snúa að styrktarþjálfun og hópþjálfun
Kennslufræði í líkamsrækt
Grunnspor í líkamsræktarkennslu
Líkamsbeiting við líkamsræktarkennslu
Líffæra- og lífeðlisfræði
Tónlistarvinna; tónlistin er helsta verkfæri kennarans í hóptímakennslu
Kennt verður hvernig talið er í tónlist við kennslu
Raddþjálfun og kennsla í framkomu (Performance)
Samskipti og samvinna
Skráning og nánari upplýsingarum námið veitir Unnur Pálmarsdóttir. Sími: 8448707 / unnur@fusion.is