Infrared Kick Fusion & Recovery kennaranámskeið 21. – 22. september 2024
Fusion Fitness Academy kynnir nýtt nám á Íslandi – Kick Fusion & Recovery hóptímakennanám Education.
Vilt þú verða Kick Fusion & Recovery hóptímakennari?
Kennaranámskeið fer fram 21. – 22. september í Reebok Fitness Lambhaga
Hefur þú stundað hóptímaþjálfun, Kickbox, Karate, Spinning, íþróttir. dans, lyftingar, Yoga og ertu með brennandi áhuga á heilsusamlegu líferni? Þá er Kick Fusion hóptímakennaranám fyrir þig. Ef þú hefur brennandi áhuga starfa við líkams- og heilsurækt í framtíðinni í heilsurækt þá er þetta tækifæri fyrir þig. Kick Fusion hóptímakennaranám er bæði fyrir þá sem hafa þjálfað áður og þá sem eru að stíga sín fyrstu skref. Frábært atvinnutækifæri fyrir alla sem hafa áhuga á að starfa við heilsu- og líkamsrækt.
KENNSLA FER FRAM Í REEBOK FITNESS LAMBHAGA
Laugardagur 21. september 2024 kl. 11:30 – 16:30
Sunnudagur 22. september 2024 kl. 11:00 – 16:00
VERÐ 75.500 ISK
Stéttarfélög niðurgreiða námskeiðsgjald. Skoðaðu þinn rétt hjá þínu stéttarfélagi.
Innifalið í verði eru öll námsgögn á kennaranámskeiðinu, kennslumyndbönd frá Kick Fusion líkamsræktarkerfinu, tónlist sérhönnuð fyrir Kick Fusion og fleira.
Kennsla er bæði bókleg og verkleg
ALDURSTAKMARK
Aldurstakmark fyrir námskeiðið er 17 ára.
SKRÁNING
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Unnur Pálmarsdóttir
unnur@fusion.is
s: 8448707
www.fusion.is
Komdu og taktu þátt í Kick Fusion & Recovery hóptímakennaranámi
Einstakt tækifæri fyrir þig.
Kick Fusion & Recovery lýsing:
Kick Fusion & Recovery er alhliða líkamsþjálfun sem byggir á þol-,styrktar-og kraftþjálfun. Er íslenskt líkamsræktarkerfi hannað af Unni Pálmarsdóttur.
Góð þolþjálfun í takt við sérhannaða hvetjandi tónlist sem byggir á hreyfingum úr kickboxi og TABATA lotum sem tryggir góðan eftirbruna.
Tíminn flýgur á meðan þú upplifir toppbrennslu!
Við munum leggja áherslu á öryggi og góða tækni við allar æfingar sem gerðar eru. Í Kick Fusion þá styrkir þú einnig vel kvið og bak.
Unnið er með líkamsþunga og því er líkamsræktarkerfið uppbyggt fyrir alla.
Kick Fusion & Recovery eykur þol, styrk & ákveðni. Gerðar eru styrktar, kraft og þolæfingar í mislöngum lotum en í lotuþjálfun skiptast á lotur með hárri ákefð og lotur með lægri ákefð eða hvíld. Unnið er með jafnt með styrkar- og þolþjálfun.
Kick Fusion & Recovery er:
-
HIIT æfingar
-
Mikil brennsla
-
Aukinn styrkur
-
Aukið þol og snerpa
-
Unnið er með eigin líkamsþunga
-
Recovery bandvefslosun í lok hvers hóptímar þar sem unnið er með litla nuddbolta, teygjur og fl.
-
Yoga og Pilates æfingar í upphaf og lok hvers tíma
-
Liðleikaþjálfun og unnið með öndun í hverjum tíma
-
Vellíðan & núvitund