Fusion Pilates Level 2

image.png
Fusion Pilates – Level 2 Kennaranámskeið fjarnámskeið

Kennaranámskeið verður haldið dagana 9. – 10. janúar á  ZOOM fjarnámskeið

Kennari og höfundur Fusion Pilates er Unnur Pálmarsdóttir 

Fusion Pilates er kennt í Infrared, heitum sal og einnig kennt í sal án upphitunar.

Fusion Pilates Level 2 er  framhaldsnámskeið af Fusion Pilates Level 1 og alla þá sem hafa áhuga á góðri styrktarþjálfun og endurhæfingu og vellíðan á líkama og sál. Ávinningurinn er sá að Unnur fer yfir kröftugri Fusion Pilates æfingar með handlóðum, teygjum og einnig er blandað saman Fitness Yoga hreyfingum. 

Fusion Pilates Level 2 framhaldsnámskeið styrkir vel allan líkamann og er sérhannað til að þjálfa stoðkerfið og fyrir þá sem hafa vefjagigt.  Hér er blandað saman Yoga, Pilates æfingum, bandvefslosun, Trigger Point Pilates og unnið er með eigin líkamsþyngd og einnig með FitBall bolta. Í Fusion Pilates Level 2 eru framkvæmdar kröftugri æfingar með léttum handlóðum og teygjum til að vinna vel með allan líkamann.  Við vinnum vel með djúpvöðva líkamans. Unnið er með að styrkja vel  kvið- og bakvöðva sem bætir líkamsstöðu og færir þátttakendum langa fallega vöðva. Jafnvægi og aukinn liðleiki er mikilvægt atriði í þjálfun í Fusion Pilates Level 2.  Unnið er með eigin líkamsþyngd, handlóð og teygjur með þyngdir sem henta hverjum og einum. Einnig eru stóru vöðvarnir þjálfaðir í kvið og baki, læri, rassvöðvum, styrkjum  mjaðmir, grindarbotn,  efri líkama og axlir og endurnærir líkama og sál losar um streitu í líkamanum og eykur orku. 

Við vinnum vel með djúpvöðva líkamans. Unnið er með að styrkja vel kvið- og bakvöðva sem bætir líkamsstöðu og færir þátttakendum langa fallega vöðva. Jafnvægi og aukinn liðleiki er mikilvægt atriði í þjálfun í Fusion Pilates Level 2. Unnið er með eigin líkamsþyngd, handlóð og teygjur með þyngdir sem henta hverjum og einum. Einnig eru stóru vöðvarnir þjálfaðir í kvið og baki, læri, rassvöðvum, styrkjum mjaðmir, grindarbotn, efri líkama og axlir og endurnærir líkama og sál losar um streitu í líkamanum og eykur orku. Tímarnir enda á góðri slökun, bandvefslosun og teygjum fyrir líkama & sál.

Unnur Pálmarsdóttir er höfundur af líkamsræktarkerfunum og kennarnáminu Fusion Pilates Level 1 og 2.

KENNARANÁMSKEIÐ FER FRAM Á ZOOM FJARNÁMSKEIР

Laugardagur 9. janúar kl. 10:00 – 17:00

Sunnudagur 10. janúar kl. 12:00  – 17:00

 

VERÐ 149.000 ISK

Hægt er að skipta greiðslum í 4 hluta.

Stéttarfélög niðurgreiða námskeiðsgjöld og athugaðu hjá þínu stéttarfélagi hvort námskeiðið sé styrktarhæft fyrir þig þar sem styrktarsjóðir eru mismunandi hjá hverjum og einum. 

 

Innifalið í verði:
  • Öll námsgögn á kennaranámskeiðinu
  • Pilates Anatomy kennslubók
  • Líffæra- og lífeðlisfræði
  • Kennslufræði og framkoma
  • Fræðin um Pilates 
  • Uppsetning á Fusion Pilates Level 1 kennslutíma
  • Kennslumyndbönd af Fusion Pilates 
  • Fusion Pilates tónlist
  • Markaðsfræði  
  • Kennslan er bæði verkleg og bókleg
  • Námsefnið og kennslustundirnar eru aðgengilegar á námssvæði Fusion Pilates Level 1 og því getur nemandi horft á kennslustundir 
  • Námsefnið er ávallt aðgengilegt og því getið þið lært þegar ykkur hentar 
ALDURSTAKMARK
Aldurstakmark fyrir námskeiðið er 18 ára.

 

SKRÁNING
Nánari upplýsingar og skráning er hjá Unnur Pálmarsdóttir
unnur@fusion.is
www.fusion.is
s: 8448707

 

Ummæli viðskiptavina

Bergþóra Hrund Ólafsdóttir

“Frá því að ég datt inn á Fusion Pilates námskeið hjá Unni Pálmarsdóttur fyrir ári síðan hef ég tekið hvert námskeiðið á fætur öðru og í fyrsta sinn lengi fundist virkilega skemmtilegt að mæta í leikfimi. Tímarnir skiptast í Fusion Pilates æfingar tvisvar í viku og fjöruga stöðvaþjálfun einu sinni í viku sem er fín blanda af styrktaræfingum og brennslu. Unnur er einstaklega hvetjandi leiðbeinandi og nær að skapa góða stemmingu í hópnum. Ég get klárlega mælt með Fusion Pilates hjá Unni Pálmars fyrir þær sem vilja koma leikfimi inn í rútínuna hjá sér og hafa gaman í leiðinni.”

Guðlaug Edda Steingrímsdóttir

“Fusion Pilates námskeiðið er eitt besta námskeið sem ég hef sótt. Ég fékk brjósklos fyrir nokkrum árum og Fusion Pilates bjargaði mér algjörlega, æfingarnar styrkja allan líkaman og sérstklega miðjuna, það sem er frábært við þetta Fusion Pilates námskeið er að tímarnir eru 3x í viku og þá er einn tíminn stöðvaþjálfun þar sem Pilates æfingar eru í bland við aðrar æfingar. Ég elska að mæta í þessa tíma, frábær kennari og skemmtilegur félagsskapur.”

Guðrún Sverrisdóttir

“Ég fór á fyrsta Fusion Pilates námskeiðið mitt hjá Unni Pálmarsdóttur í janúar 2017 og hef ekki sleppt úr námskeiði hjá henni síðan. Ég elska að mæta í þessa tíma og ekki skemmir fyrir hvað Unnur er jákvæð og hvetjandi í tímunum. Mæli 100% með þessu námskeiði fyrir þær sem eru að leita sér að góðri hreyfingu sem hefur góð áhrif á stoðkerfið.”